Það er komin vetrartíð....samviskubit dauðans!
19.9.2007 | 19:57
Ég er búinn að vera á leiðinni í líkamsræktina frá því ég kom heim frá Krít, það er ótrúlegur árangur! Ég man þá tíð þegar maður var ungur og fit og át hvað sem er án þess að fá nokkra bakþanka! Í dag er ég ekki eins fit en er samt í þokkalegu formi, en þegar ég svo mikið sem hugsa um kleinuhring, tala nú ekki um þegar ég "sting" mér inn í bakarí og fæ mér einn þá fæ ég samviskubit dauðans og dagurinn er ónýtur´! Ég er að verða eins og versta kerling með þetta, eða er þetta málið að halda sér grönnum? Ég fékk mér pylsu(2xpylsu) og kók í hádeginu í dag og það var unaðslegt meðan á því stóð, en Helgi litli var ekki lengi í paradís, því ég fékk mér Prinspóló í eftirrétt og þarna gekk ég of langt! ég fékk bakþanka!!, og í allan dag lét samviskan mig heyra það óþvegið "HVAÐ ERTU AÐ SPÁ, ÉTANDI PYLSUR UM HÁBJARTAN DAG NIÐRI Í BÆ, OG PRINSPÓLÓ!!!! Í EFTIRRÉTT!! ER EKKI ALLT Í LAGI ÆTLAR ÞÚ AÐ VERÐA FEITUR ! ég veit ekki, á ég ekki bara að skella mér í líkamsrækt fljótlega og friða samviskuna?........mig langar svo rosalega í kleinuhring núna.......
Athugasemdir
Þetta er alltí lagi Helgi.... núna skellir þú þér bara í ræktina eftir vinnu og ekkert múður ;-) hættu að vera með samviskubit, það dregur þig bara lengra og lengra niður...
..og HÆTTU að hugsa um KLEINUHRINGINN....hhehhehehhhe.. hann er örugglega líka bara vondur, það er örugglega hár af bakaraunm einhversstaðar í honum, þessir djöflar eru svo ógisslega miklir sóðar....
Jæja í ræktina... það er æði. Ég tók mér of langt frí, og það er svo ÆÐISLEGT að vera byrjuð aftur..
kv Annapanna :-)
anna (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 12:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.