Allir latir í Latabæ.....

Eftir mjög stutta umhugsun í dag tók Helgi Kr. Jakobsson þá ákvörðun að fresta allri hreyfingu þangað til í byrjun feb.  Að sögn Helga hefur ótímabær leti sett strik í reikninginn, haft var eftir honum að þetta sé það stærsta strik sem hann hefur séð lengi!  "það hefur verið nóg að gera í dvd glápi, svo ekki sé talað um tíman sem hefur farið í að skjótast í KFC" sagði Helgi að vonum nokkuð vonsvikinn með árangurinn! "ég hef undanfarið reynt að taka stóran sveig framhjá vídeóleigunni og hef verið í viðræðum um að láta loka KFC...allvegana hérna í Hafnarfirði"!   Að lokum sagði Helgi að þetta ætti í sjálfu sér ekki að koma að sök því hann væri eiginlega búinn að sjá allt sem er í boði á vídeóleigunni "ég fer að koma mér af stað fljótlega!!"  sagði Helgi og var rokinn í burtu með poka merktan KFC........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Helgi minn, hvað er um að ske?!

Ég skora á þig í fitnesskeppni! Sá sem tapar þarf að borða á KFC 2var á dag, 25daga í röð...

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 13:13

2 Smámynd: Helgi Kristinn Jakobsson

össs...........tökum átkeppni á þetta ......

Helgi Kristinn Jakobsson, 23.1.2008 kl. 15:49

3 Smámynd: Helgi Kristinn Jakobsson

....já....ég er búinn að fá frí eftir hádegi!......

Helgi Kristinn Jakobsson, 23.1.2008 kl. 17:27

4 identicon

Nei það er breyting á planinu...Við ætlum að taka hádegisæfingu í staðinn fyrir ítroðun. Mæting í Bútkamp kl 12.30 Suðurlandsbraut 6!

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 22:51

5 identicon

10.10.2010 það þarf að fara að taka á því

Signý (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 20:26

6 Smámynd: Helgi Kristinn Jakobsson

.....nei átti það ekki að vera 09.09.2009...........

Helgi Kristinn Jakobsson, 24.1.2008 kl. 21:18

7 identicon

Hver er'essi Signý? -Er þetta Fíbí lifandi komin?

Ha? Enívonn?

Sæunn (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband