Er ég að breytast í kerlingu!

 

Þrífa

Ég er með það á hreinu að ég sé að breytast í kerlingu, ég sofnaði fyrir kl. 23.00 í gærkveldi, og vaknaði kl.8.30 og dreif mig í ræktina, kom svo heim og setti í þvottavél, vaskaði upp, þreif alla íbúðina, og hengdi upp úr þvottavélinni.  Ég er ekki að meina að þetta séu einhver kvenmanns verk! en ég hef áhyggjur af því að mér líður ekki vel nema allt sé tipp topp!   Hér áður fyrr þá gat ég andað rólega þó svo að ekki væri búið að þrífa í einhvern tíma.  En nú er ég með ryksuguna á lofti oft í viku og geri allsherjar hreingerningu oft í mánuði.  Þoli ekki að sjá ryk á gólfinu, og skrúppa klósettið reglulega.  Hvað er að ske?!  Er ég komin með áráttu eða hvað!? Woundering.....hehe....en það er samt helvíti gott að slaka á og kúra í hreinni íbúð.  En það er einmitt málið!! ég gat slakað á og kúrað þótt svo að ekki væri búið að þrífa hér áður fyrr, en núna er það ómögulegt!!.....eitthvað sem ég hélt að væri bara innbyggt í kvenfólk......þannig að ég hlýt að vera breytast í kerl........

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þú breytist í kerlingu, sem mér sýnist allt vera að stefna í,  þá verður það ekkert stórmál... Breytir nafninu bara í Helgu og málið dautt

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 17:38

2 identicon

bíddu, bíddu!

ertu semsagt að segja mér það fyrst núna að þú sért og hafir verið karlmaður allan þann tíma sem við höfum þekkst?

ég hélt að við værum vinkonur!!!

Sæunn (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 19:07

3 Smámynd: Helgi Kristinn Jakobsson

nei ég er ekki í meyjarmerkinu..........ég er í frímerkinu......(lesist sem aulabrandari)

Svavar! ef að ég kalla mig Helgu ætlar þú þá að eiga með mér rómantíska stund á KFC ?

nei nei Sæunn ....ekkert breyst!  ég er alltaf á leiðinni til þín að láta þig lita á mér augnhárin........hehe

Helgi Kristinn Jakobsson, 16.3.2008 kl. 19:55

4 identicon

Ja, sko ef Svavar þorir ekki að eiga með þér rómantíska stund á KFC þá er hann sko kjúklingur!

Sæunn (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 20:14

5 identicon

Já já rómantísk kvöldstund á KFC klikkar aldrei enda ekki að ástæðulausu að sósurnar þeirra séu kallaðar HOT sauce

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband